Pæleikar - Kötturinn í sekknum?
…eða kannski frekar á forknum. Oftar en ekki hringir maður í internetið og kíkir á forkinn. En veit forkurinn eitthvað í sinn haus? EFP er búinn að fjárfesta í nokkrum skífum sem forkurinn telur ómissandi á árinu, stundum blint, stundum ekki. Er forkurinn að rýja EFP inn að skinni, eða er hann bara snillingur? Hér eru nokkrar plötur sem hafa ratað í innkaupakörfuna, yfirleitt án mikillar ef einhverrar hlustunar.
Clap Your Hands Say Yeah - Clap Your Hands Say Yeah
PF 9.0 EFP 7.9
Hvað er eiginlega ad gerast með þessi hljómsveitarnöfn í dag, pant fá s-böndin aftur. Say yeah to your hands, alltof flókið. The Claps? Þessi eitís pönk bræðingur er orðinn fremur þreyttur, en The Claps eru barasta að virka.
Art Brut - Bang Bang Rock & Roll
PF 8.9 EFP 7.7
Hmm, ekki alveg viss med hana þessa. Á frekar eftir verða hækkuð upp, með lækkandi sól, ef eitthvað er. Jamm.
The Hold Steady - Separation Sunday
PF 8.7 EFP 6.8
Uss, fylliraftur röflandi yfir misgóðri tónlist. Mæli þó med laginu Cattle and the creeping things. Laumast jafnvel á topp 10. The Boy Least Likely To - The Best Party Ever
PF 8.5 EFP 8.8
Hér var rennt blint í sjóinn, en þvílík hamingja. Stuðið aldrei langt undan þegar þessi fer á fóninn, uppáhaldsplata Loga.
Antony and the Johnsons - I Am a Bird Now
PF 8.6 – EFP 7.7
Enn einnBrooklyn -búinn sem er kominn í hæpvélina. Fínir tónleikar á nasa. Anton náði að bræða rokkhjartað en það hefur þó að mestu storknað, skáldlegt.
LCD Soundsystem - LCD Soundsystem
PF 8.2 EFP 6.2
Þetta á víst ad vera einn sá svalasti, alla vega á síðasta ári. Vinur David Holmes, mixari fyrir Le Tigre og fleiri, neitaði samt ad skrifa fyrir Seinfeld. Þessi var sett í innkaupakörfuna með eftirvæntingu, en ha? Hér hafði forkurinn tvo stig af EFP.
Niðurstaðan: Forkurinn gaf 51.9 stig, EFP 45.1. Spurning, hmm. Kannski best að hlusta næst með eyrunum áður en straujað er með höndunum.
PF 9.0 EFP 7.9
Hvað er eiginlega ad gerast með þessi hljómsveitarnöfn í dag, pant fá s-böndin aftur. Say yeah to your hands, alltof flókið. The Claps? Þessi eitís pönk bræðingur er orðinn fremur þreyttur, en The Claps eru barasta að virka.
Art Brut - Bang Bang Rock & Roll
PF 8.9 EFP 7.7
Hmm, ekki alveg viss med hana þessa. Á frekar eftir verða hækkuð upp, með lækkandi sól, ef eitthvað er. Jamm.
The Hold Steady - Separation Sunday
PF 8.7 EFP 6.8
Uss, fylliraftur röflandi yfir misgóðri tónlist. Mæli þó med laginu Cattle and the creeping things. Laumast jafnvel á topp 10. The Boy Least Likely To - The Best Party Ever
PF 8.5 EFP 8.8
Hér var rennt blint í sjóinn, en þvílík hamingja. Stuðið aldrei langt undan þegar þessi fer á fóninn, uppáhaldsplata Loga.
PF 8.6 – EFP 7.7
Enn einn
LCD Soundsystem - LCD Soundsystem
PF 8.2 EFP 6.2
Þetta á víst ad vera einn sá svalasti, alla vega á síðasta ári. Vinur David Holmes, mixari fyrir Le Tigre og fleiri, neitaði samt ad skrifa fyrir Seinfeld. Þessi var sett í innkaupakörfuna með eftirvæntingu, en ha? Hér hafði forkurinn tvo stig af EFP.
Niðurstaðan: Forkurinn gaf 51.9 stig, EFP 45.1. Spurning, hmm. Kannski best að hlusta næst með eyrunum áður en straujað er með höndunum.
1 Comments:
Rétt, en þessar lægstu eru svo assgoti óþægilegar í hillu
Skrifa ummæli
<< Home