miðvikudagur, ágúst 17, 2005

Stellastarr* mætt aftur

Hver man ekki eftir vinum okkar í Stellastarr*? Amanda og félagar eru víst tilbúin með nýja plötu, eru komin á stóran label og voða gaman. Hér má alla vega finna fyrsta singulinn af þessari plötu. Ég gleymi því seint þegar ég heyrði My Coco í fyrsta skipti á Luna Lounge, gæsahúð og hárris á hálsi, reyndar víðar. Lítið um húð á gæs í þetta skiptið, held að þeim sé aðeins farið að fatast flugið.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hank sagðist hafa ratað inn á tónleika á einhverjum smábar um daginn þar sem Stellastarr* voru að spila undir leyninafni og prófa nýja efnið á áheyrendur. Var ekki hrifinn. Amanda er samt alltaf sæt.

12:01  
Anonymous Nafnlaus said...

Maður myndi nú kannski dilla sér við þetta ef maður væri í gírnum á Don Hills en kannski ekki mikil þróun hjá þeim.

14:12  

Skrifa ummæli

<< Home